Sigrún Þorbergsdóttir

Ég er Norðfirðingur en hef búið í Reykjavík í  15 ár og síðustu 2,5 ár (síðan í ágúst 2005) á Akranesi. Ég og Ástþór maðurinn minn eigum yndislega dóttur sem heitir Ástrós Elísabet  og er 5 ára síðan 5.desember. Ég og Ástþór erum búin að vera gift síðan 1998 en saman síðan 1990, geri aðrir betur!

Ég bjó í Neskaupstað þangað til ég var rúmlega 17 ára en þá flutti ég úr foreldrahúsum og til Reykjavíkur. Ég fór beint í sambúð með Ástþóri og höfum við búið í leiguíbúðum í mörgum hverfum Reykjavíkur. Við keyptum okkar fyrstu íbúð í nóv.1997 í Bugðulæk í laugarneshverfinu. Það var frábært að búa þarna, æðisleg staðsetning, rólegt hverfi, rétt hjá Laugardalnum og matarbúð í labbfæri.

Ég útskrifaðist úr KHÍ vorið 2000 með samfélagsfræði og dönsku sem valgreinar. Strax eftir útskrift fór ég að kenna í Vesturbæjarskóla Rvík og líkaði vel. Þar var ég að kenna þangað til ég flutti til Akraness.

Ég er að kenna í Brekkubæjarskóla og núna í vetur ´07-´08 er ég að kenna 1.bekk.

Meira seinna...................

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Sigrún Þorbergsdóttir

Um bloggið

Sigrún Þorbergsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbergsdóttir
Sigrún Þorbergsdóttir

Er algjör byrjandi í bloggi.

Ég er 35 ára gömul; dóttir, systir, MÓÐIR, eiginkona og er og starfa sem grunnskólakennari.

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband